Primordial Saint

‹ Öll verkefni

Gagnabanki · Rafeindatækni

Handy McHandface

Hópverkefni í Fab Academy: þrívíddarprentuð hönd sem snýst og veifar, stýrt með PS4-fjarstýringu.

Þrívíddarprentuð hönd á snúningsplötu

Hópverkefni í vikum 15–16 í Fab Academy 2018 með Svani, Jóni (Fab Lab Akureyri) og Karítas (Fab Lab Sauðárkróki). Vika 15 · Vika 16 · Síða hópsins

Hvað er þetta?

Hönd sem snýst og veifar. Upprunalega átti skynjari að láta hana veifa þegar einhver gengi hjá, en við enduðum á að stýra henni með PS4-fjarstýringu: vinstri stýripinninn snýr hendinni og sá hægri beygir fingurna.

Höndin tilbúin

Af hverju?

Við vorum aðeins þrjá daga saman í Reykjavík svo við skiptum verkum eftir styrkleikum. Minn hluti var hugbúnaðurinn og stýringin.

Hópurinn

Hvernig?

  • Stýring: TinyG spjald, fyrst stýrt beint með G-kóða í CoolTerm og svo tengt við Chilipeppr í gegnum JSON serial port server, sem gerði okkur kleift að nota PS4-fjarstýringuna
  • Fingur: fjórir prentaðir hlutar á hvern fingur með liðum úr TPU (sveigjanlegu efni), dregnir saman með streng
  • Grunnur: snúningsplata þar sem snúningurinn var takmarkaður við 180° svo snúrurnar flæktust ekki, með endastoppi úr ónýtum þrívíddarprentara
  • Strengjahjól: hannað í Fusion 360 til að festa strengina á mótorinn

Fingur úr TPU Grunnurinn með TinyG

Hvað fór úrskeiðis?

  • TPU-liðirnir voru of stífir, svo ég skar þá hálfa leið í gegn til að gera þá sveigjanlegri.
  • Eftir nýja forritun hætti TinyG að virka og við þurftum að endurstilla það með TinyG Updater.
  • Með meiri tíma hefðum við gert grunninn stöðugri og stýrt hverjum fingri fyrir sig.

Skrár

Fusion skrá fyrir strengjahjólið